08 September 2009

Stjórnmálaskóli Ungra Jafnaðarmanna

Steindór hjá UJ hringdi í mig um daginn og bað mig um að hanna fyrir sig plakat til að kynna Stjórnmálaskólann. Hann vildi fá það litríkt og grípandi, eitthvað sem myndi laða að yngra fólk. Ég var bara nokkuð sáttur við útkomuna. Hægt að sjá plakatið á verkin síðunni.


27 Júlí 2009

Til hamingju Atli og Maríanna

Laugardagurinn 25. Júlí var svo sannalega frábær dagur. Atli og Maríanna tóku stóra skrefið og urðu hjón. Athöfnin var frábært, veislan bráðskemmtileg og hjónin gullfalleg.

Fyrir einhverju síðan talaði Maríanna við mig og spurði hvort ég væri til í að teikna þau og gefa þeim á striga. Ég fór strax í það að brainstorma og ákvað að gera mynd af þeim eins og ég sé þau. Ég ákvað að hafa hana blöndu af realistic og comic og þar sem þau bæði dýrka allt sem við kemur göldrum og því dularfulla ákvað ég að visualiza það afl sem bindur þau saman. Verkið er hægt að sjá á verkin síðunni og auðvitað í 80x60 útgáfu heima hjá þeim.


17 Júlí 2009

Welcome to Iceland poster

Langaði að gera poster sem bæði grípur augað og er eitthvað sem maður hefur ekki séð áður. Ég setti allt verkið upp í "simetríu" þannig að það er speglað frá hægri til vinstri. Til þess að það yrði ekki alveg eins og önnur hver auglýsing í dag hannaði ég það eins og spil. Posterinum er hægt að snúa við og þá færðu allt aðra tilfinningu en skilaboðin komast samt í gegn.